Fara í efni

Verkföllum aflýst !

Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd fjórtán bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB undirrituðu rétt eftir miðnætti nýjan kjarasamning.

Stéttarfélögin sem um ræðir eru: Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Sameyki, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu, Starfsmannafélag Fjallabyggðar, Starfsmannafélag Fjarðabyggðar, Starfsmannafélag Húsavíkur og Starfsmannafélag Vestmannaeyja, FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfamannafélag Mosfellsbæjar og Starfsmannafélag Suðurnesja

Kjarasamningurinn er gerður í anda Lífskjarasamningsins sem gildir á almennum vinnumarkaði. Verði samningurinn samþykktur mun hann gilda frá 1. janúar 2020 til 31. mars 2023.

Nú fer í hönd kynning á og atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn meðal félagsmanna bæjarstarfsmannafélaganna.

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar mun liggja fyrir þann 23. mars næstkomandi.

 


Síðast breytt: 18. mars 2020
Getum við bætt efni síðunnar?