Fara í efni

Húsnæðismál

Starfsmenn félagsþjónustu Hveragerðisbæjar veita einstaklingum og fjölskyldum ráðgjöf varðandi húsnæðismál og húsaleigu samninga.

Félagslegt leiguhúsnæði

Félagslegar leiguíbúðir eru ætlaðar einstaklingum og fjölskyldum sem ekki hafa tök á öðrum úrræðum vegna lágra tekna, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna.

Umsóknarréttur um félagslega íbúð er bundinn eftirfarandi skilyrðum og endurnýja þarf umsókn árlega:

  • Umsækjandi þarf að hafa átt lögheimili í Hveragerði í tólf mánuði áður en umsókn berst.
  • Umsækjandi má ekki eiga fasteign
  • Umsækjandi þarf að sýna fram á að hann standist ekki greiðslumat til kaupa á íbúð.

Umsækjandi þarf að vera innan tekju- og eignarmarka sem eru samkvæmt félagsmálaráðuneytinu:

  • Tekjumörk einstaklings................................kr. 5.731.000
  • Tekjumörk hjóna og sambúðarfólks.............kr. 8.025.000

Fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr

  • á heimilinu bætast við..................................kr. 515.880
  • Eignarmörkin eru..........................................kr. 6.0186.000

 Hveragerðisbær á 6 félagslegar leiguíbúðir sem eru leigðar út til eins árs í senn.

 

Húsnæðisbætur

Almennar húsanæðisbætur

Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur ætlaðar til þess að aðstoða fólk sem leigir íbúðarhúsnæði. Húsnæðið getur verið á almennum leigumarkaði, félagslegt leiguhúsnæði, á námsgörðum eða áfangaheimili. Ákveðin skilyrði þarf að uppfylla til að fá húsnæðisbætur. Húsnæðisbætur tóku við af eldra bótakerfi sem var kallað húsaleigubætur.

Nánari upplýsingar á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofununar  - HMS

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Sveitarfélögin veita sérstakan húsnæðisstuðning í viðbót við húsnæðisbætur til fólks sem býr við erfiðar fjárhagslegar eða félagslegar aðstæður.

Vakin er athygli á því að umsækjendur verða að hafa sótt um húsnæðisbætur fyrst hjá Greiðslustofu áður en þeir sækja um sérstakan húsnæðisstuðning til Hveragerðisbæjar.

Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu vegna samþykktra íbúða á almennum markaði til viðbótar við almennar húsnæðisbætur. Umsóknir eru metnar út frá ákveðnum tekjuviðmiðum og félagslegum aðstæðum. Félagsráðgjafi tekur við og metur umsóknir um sérstakan húsnæðisstuðning.

Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning

Sækja um sérstakan húsnæðisstuðning

Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir 15-17 ára börn í heimavist

Sveitarfélagið veitir einnig sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra barna sem eru á aldrinum 15-17 ára og dvelja í heimavist eða námsgörðum.

Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15-17 ára barna

Síðast breytt: 10.07.2024
Getum við bætt efni síðunnar?