Úthlutun leikskólaplássa í leikskóla Hveragerðis fyrir skólaárið 2025-2026
Umsóknir um leikskólapláss fyrir skólaárið 2025-2026 þurfa að berast fyrir 22. apríl 2025 og er skilað inn á íbúagátt Hveragerðisbæjar. Í fyrstu úthlutun verður einungis úthlutað þeim sem sótt hafa um leikskólavist fyrir þann tíma og hafa lögheimili í Hveragerði.
Plássum er úthlutað í kennitöluröð, þar sem elstu börnin fá boð fyrst og svo framvegis.
Ekki er hægt að breyta innsendum umsóknum fyrr en að tímabilinu loknu.
Úthlutun leikskólaplássa fyrir skólaárið 2025-2026 skiptist í tvennt:
Fyrst verður úthlutað þeim leikskólaplássum sem hægt verður að tryggja frá og með ágúst - september 2025. Fyrri úthlutun fer fram fyrir 30. apríl 2025.
Í seinni hluta úthlutunar er unnið eftir upplýsingum sem fram koma eftir að fyrri úthlutun hefur verið lokið. Þeim leikskólaplássum sem verður úthlutað í seinni úthlutun geta reiknað með að hefja leikskólagöngu í október- nóvember 2025. Seinni úthlutun fer fram fyrir 16. maí.
Mikilvægt er að þeir foreldrar sem fá úthlutun leikskólaplássa bregðist við fljótt og örugglega svo hægt verði að vinna umsóknir áfram með skilvirkum hætti.