Town Quiz spurningaleikurinn lukkaðist vel
20.11
Frétt
Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd stóð fyrir Town quiz spurningaleik í gær og lukkaðist einkar vel. Um 70 manns tóku þátt í spurningaleiknum og fleiri skráðu sig inn til að fylgjast með. Heimir Eyvindarson hélt uppi stuðinu fyrir þátttakendur og fékk lof fyrir á umræðusíðu Hvergerðinga á Facebook.
Vinningar voru í boði fyrir fyrstu þrjú sætin og fóru þau til:
- sæti. Bjarndís Helga Blöndal
- sæti Jónína Njarðardóttir
- sæti: Bjarni Rúnar Lárusson
Við óskum þeim innilega til hamingju. Gjafabréf bíða þeirra í móttöku bæjarskrifstofunnar í Hveragerði.
Til skoðunar er að endurtaka leikinn aftur fyrir jól og verður þá tækifæri fyrir enn fleiri að taka þátt!
Síðast breytt: 20. nóvember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?