Fara í efni

Tilkynning um ágalla í nýuppsettum LED götulömpum

Undanfarið hefur farið fram uppsetning á nýjum LED lömpum fyrir götulýsingu í Hveragerði. Þetta er liður í LED væðingu götulýsingar Hveragerðisbæjar en áætlað er að seinni áfangi verði settur upp sumarið 2023.

Því miður hefur komið upp sú staða að uppsettir LED lampar eru ekki samkvæmt pöntun og þarf því að skipta þeim út fyrir rétta lampa. Málið er í ferli hjá söluaðila og unnið verður að útskiptingu eins fljótt og hægt er á ábyrgð söluaðila. Dagsetningar á útskiptingu lampana munu koma í ljós fljótlega.

Við biðjumst velvirðingar á óþægindum vegna þessa og væntum þess að þessu verði kippt í lið eins fljótt og hægt er. 

Höskuldur Þorbjarnarsson
Umhverfissfulltrúi 


Síðast breytt: 8. nóvember 2022
Getum við bætt efni síðunnar?