Fara í efni

Sýning á ljósmyndum Sigurbjörns Bjarnasonar

Í dag, 29. maí kl. 17, opnar á Bókasafninu í Hveragerði sýning á ljósmyndum Sigurbjörns Bjarnasonar sem hann hefur tekið af húsunum sem rifin voru eftir jarðskjálftana 29. maí 2008 hér í Hveragerði. Þarna er um að ræða eldri myndir af umræddum húsum, teknar á ýmsum tímum, myndir sem teknar voru á meðan verið var að rífa húsin og loks alveg nýjar myndir teknar á svipuðum stað og elstu myndirnar og sýna svæðið eins og það lítur út núna í maí, með eða án húsa. Einnig verða á sýningunni fleiri myndir tengdar þessum húsum og jarðskjálftanum rúllandi á skjá. Sigurbjörn hefur afhent bókasafninu ljósmyndirnar til eignar.

Okkur langar til að þetta verði lifandi sýning. Hún er sett upp með lágmarks texta, en svo vonumst við til að þeir sem koma og skoða geti bætt við upplýsingum og jafnvel sögum sem tengjast þessum húsum og þannig mun sýningin vinda upp á sig.

Verið velkomin á sýningaropnun í spjall og kaffi.

Sýningin stendur til 27. júní og er opin um leið og safnið, mánudaga kl. 11-18:30, þriðjudaga – föstudaga kl. 13-18:30 og laugardaga kl. 11-14.


Síðast breytt: 29. maí 2018
Getum við bætt efni síðunnar?