Fara í efni

Sumarstörf 2018

Hveragerðisbær óskar eftir sumarstarfsmönnum í eftirtalin störf:

Ævintýranámskeið - leiðbeinendur
Starfsmenn óskast á námskeið 5 og 6 ára barna og 7 - 11 ára barna. Námskeiðin eru aldursskipt og eru verkefnastjórar yfir hvorum hóp.

Mikilvægt að starfsmenn hafi áhuga á að starfa með börnum og vilji takast á við fjölbreytt verkefni eins og útiveru, listsköpun, hreyfingu og sjálfstyrkingu.

Þekking eða reynsla af starfi með börnum er kostur.

Æskilegur aldur 18 ára og eldri.

Nánari upplýsingar veitir Elín Esther Magnúsdóttir, forstöðumaður Bungubrekku, eline@hveragerdi.is

Vinnuskóli Hveragerðisbæjar - yfirflokksstjóri - flokksstjórar

Óskað er eftir starfsmanni í starf yfirflokksstjóra vinnuskólans. Yfirflokksstjóri sér um daglegan rekstur vinnuskólans og deilir daglegum verkefnum til flokksstjóra.

Æskilegur aldur 20 ára og eldri.

Óskað er eftir starfsmönnum í störf flokksstjóra. Flokksstjórar stýra vinnuskóla-hópum í ýmsum umhverfisverkefnum fyrir Hveragerðisbæ.

Æskilegur aldur 18 ára og eldri.

Nánari upplýsingar veitir Höskuldur Þorbjarnarson, umhverfisfulltrúi, hoskuldur@hveragerdi.is

Umhverfissvið Hveragerðisbæjar – almenn umhirða
Starfsmenn í ýmis störf t.d í almenna umhirðu opinna svæða og fleiri umhverfisverkefni.

Æskilegur aldur 16 ára og eldri.

Nánari upplýsingar veitir Höskuldur Þorbjarnarson, umhverfisfulltrúi, hoskuldur@hveragerdi.is

Íþróttamannvirki – sundlaug
Starfið felst í sundlaugargæslu, þrifum og afgreiðslustörfum. Unnið er á vöktum. Gerð er krafa um að starfsmenn standist kröfur um hæfnispróf sundstaða.

Æskilegur aldur 20 ára og eldri.

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna M. Hjartardóttir, menningar- og frístundafulltrúi, jmh@hveragerdi.is

Upplýsingamiðstöð Suðurlands
Starfið felst í afgreiðslu og móttöku ferðamanna. Þekking á landinu okkar fagra og þá sérstaklega Suðurlandi er kostur. Krafist er ríkrar þjónustulundar og tungumálakunnáttu.

Unnið er á vöktum.

Nánari upplýsingar veitir Sigurdís L. Guðjónsdóttir, forstöðumaður, tourinfo@hveragerdi.is

Hveragarðurinn
Spennandi starf á sviði ferðamennsku en starfið felst í móttöku gesta og umhirðu svæðis. Krafist er ríkrar þjónustulundar, sjálfstæðra vinnubragða og tungumálakunnáttu.

Unnið er á vöktum.

Nánari upplýsingar veitir Sigurdís L. Guðjónsdóttir, forstöðumaður, tourinfo@hveragerdi.is

Gæsluvöllur
Starfsmenn vantar á gæsluvöll sem verður starfræktur í sumar frá 18. júní – 10. ágúst. Vinnutíminn er frá kl. 13 – 17. Þekking eða reynsla af starfi með börnum er kostur.

Æskilegur aldur 18 ára og eldri.

Nánari upplýsingar veitir Elín Esther Magnúsdóttir, forstöðumaður Bungubrekku, eline@hveragerdi.is

Umsóknareyðublöð liggja frammi í móttöku bæjarskrifstofu, Breiðumörk 20

umsóknareyðublöð


Síðast breytt: 28. febrúar 2018
Getum við bætt efni síðunnar?