Sumarstarf á heimilinu Birkimörk í Hveragerði
Óskum eftir að ráða starfsfólk, 18 ára og eldra, í sumarafleysingar á heimili fatlaðs fólks.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og miðast þjónusta heimilisins við að efla færni, auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa. Unnið er eftir hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar og byggir starf á þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur að styðja og aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs og er markmið okkar að veita framúrskarandi þjónustu. Í því felst að aðstoða íbúa við dagleg störf, halda heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs. Um er að ræða vaktavinnu og laun eru greidd skv. kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi þarf að vera 18 ára eða eldri
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hreint sakavottorð
- Íslenskukunnátta er skilyrði
Sótt er um starfið á íbúagátt Hveragerðisbæjar undir umsóknum > mannauðsmál > sumarstarf - Heimilið Birkimörk.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2025.
Nánari upplýsingar veitir
Steinunn Jónsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi,
steinunnj@hveragerdi.is,
sími 483-4030, virka daga frá kl. 8:00 -16:00