Fara í efni

Sumarreiðnámskeið á Bjarnastöðum sumarið 2024

Sumarreiðnámskeið á Bjarnastöðum sumarið 2024

Námskeiðin eru ætluð börnum fædd 2018 og fyrr.
Hestamannafélagið Ljúfur vill styðja við hestamennsku í heimabyggð og býður upp á 15% niðurgreiðslu á sumarnámskeiðum hjá Reiðskólanum á Bjarnastöðum fyrir börn með búsetu í Hveragerði og Ölfusi (þetta gildir eingöngu fyrir eitt námskeið á barn og barnið þarf að vera með heilsársbúsetu á svæðinu).

Á byrjendanámskeiðum læra börnin uppistöðuatriði hestamennskunnar. Þau sjá um að sækja sinn hest út í gerði, greiða þeim og kemba, leggja á og læra að stjórna hestinum sjálf. Markmiðið er að allir nái nægilegri færni til að geta farið í reiðtúr fyrir lok námskeiða. Á námskeiði 3 byggjum við ofan á það sem börnin hafa lært áður og förum dýpra í hlutina. Hestamennska er langhlaup og erum við aldrei búin að læra allt. Námskeið 5 er fyrir börn sem hafa farið á námskeið hjá okkur áður og eru óhrædd við að fara á brokk. Útreiðar og kennsla í bland en þó mest riðið út.

Reiðkennari á öllum námskeiðum er Cora Claas, útskrifaður Reiðkennari, þjálfari og tamningamaður frá Hólum árið 2009. Hún hefur rekið Reiðskólann á Bjarnastöðum síðan 2020 og hefur haldið bæði sumar- og vetrarnámskeið. Cora hefur stöðugt viðhaldið og bætt við sig þekkingu með því að sækja námskeið á vegum FEIF, FT, LH og með því að sækja sjálf reiðkennslu hjá fremstu knöpum og þjálfurum landsins.

Námskeið 1, Byrjendur (lítil sem engin reynsla) 3. - 7. júní 2024
5 dagar - Dagur 1 eftir skólaslit kl 13-15 Hinir dagar kl 9 - 11 - 26000kr

Námskeið 2, Byrjendur (lítil sem engin reynsla) 3. - 7. júní 2024
5 dagar - Dagur 1 eftir skólaslit kl 15-17 Hinir dagar kl 11 - 13 - 26000kr

Námskeið 3, Lengra komin (fyrir þá sem hafa farið á amk 2 námskeið og eru nokkuð örugg) 10. - 14. júní 2024
5 dagar - kl 9 - 12 - 37500kr

Námskeið 4, Byrjendur (lítil sem engan reynsla) 10. - 14. júní 2024
5 dagar - kl 13 - 15 - 26000kr

Námskeið 5, Útreiðanámskeið fyrir vön börn 24. - 28. júní 2024
5 dagar - kl 10 - 14 - 45000kr

Öll börnin þurfa að mæta í uppháum skóm eða stígvélum, með buff og fingravettlinga og klædd eftir veðri.
Hafið auka peysu og nesti með!
Það eru takmörkuð pláss í boði, fyrsti kemur fyrsti fær.

Til að skrá barn vinsamlegast sendið tölvupóst á reidskolinn816@gmail.com með eftirfarandi upplýsingum:
Nafn barns
Kennitölu barns
Heimabyggð barns
Nafn foreldri/forráðamaður
Kennitala foreldri/forráðamaður
Símanúmer
Upplýsingar um getu barns/ofnæmi eða annað sem gæti skipt máli.

Fljótlega eftir skráningu verður sendur út staðfestingarpóstur ásamt upplýsingum um greiðslu og nánari upplýsingar fyrir námskeið. Takmarkaður fjöldi kemst að.

https://www.ljufur.is/freacutettir/sumarnamskei-2024


Síðast breytt: 16. maí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?