Fara í efni

Sumarsmellurinn í ár

Þrjár ungar stúlkur úr Grunnskólanum í Hveragerði hafa gefið út skemmtilegt nýtt lag, Förum í sumarfrí, sem vafalaust á eftir að óma á öldum ljósvakans í sumars enda er hér kominn léttur og skemmtilegur sumarsmellur.

Það er tríóið Míó-tríó sem flytur lagið en það skipa þær Gígja Marín Þorsteinsdóttir og systurnar Gunnhildur Fríða og Hrafnhildur Birna Hallgrímsdætur. Þær tóku í vetur þátt í Samfés með góðum árangri og í kjölfarið hafa þær komið fram á ýmsum viðburðum og gefa nú í fyrsta sinn út frumsamið lag í samstarfi við föður þeirra systra, Hallgrím Óskarsson.

Myndbandið er hið glæsilegasta enda tekið á ýmsum fallegum stöðum í og við Hveragerði.

Það er full ástæða til að óska hinum ungu tónlistarkonum til hamingju með flotta lagið þeirra og óska þeim velfarnaðar á listabrautinni í framtíðinni.

Hér má hlusta á lagið og sjá flotta myndbandið: https://www.youtube.com/watch?v=Q8KcigwkFUQ


Síðast breytt: 21. maí 2017
Getum við bætt efni síðunnar?