Fara í efni

Starfsmenn vantar á Undraland

Leikskólinn Undraland í Hveragerði auglýsir lausar stöður

Í haust flytur leikskólinn Undraland í Hveragerði í nýtt og stærra húsnæði. Til að byrja með verða opnaðar 4 deildir en húsið er 6 deilda og verða fleiri deildir opnaðar eftir því sem þörfin vex.

Frá og með 15. október 2017 óskum við eftir að ráða deildarstjóra á tvær yngstu deildir leikskólans og leikskólakennara í lausar stöður.

Helstu verkefni og ábyrgð:
• Deildarstjóri: Vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og menntun leikskólabarna. Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni og annast daglega verkstjórn.
• Leikskólakennari: Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfnikröfur:
• Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Færni í samskiptum og áhugi á að vinna í hóp
• Metnaðarfullur, hugmyndaríkur og sveigjanlegur.
• Jákvæðni og stundvísi.
• Hafa gott vald á íslensku

Leikskólinn starfar eftir aðalnámsskrá leikskóla og kennsluaðferðum Leikur að læra.

Leikskólinn stefnir á að verða einn af LAL-skólum landsins og í september hefst innleiðingarár í samstarfi við forsvarsmenn LAL-teymisins. Lögð er áhersla á vinnu með málörvun, læsi og hreyfingu og einkunnarorð skólans eru umhyggja, leikur og öryggi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Til greina kemur að ráða starfskrafta með aðra menntun en leikskólakennaramenntun og eða reynslu af störfum með börnum og hvetjum við aðila af báðum kynjum til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2017

Umsóknareyðublöð eru á vef Hveragerðisbæjar: www.hveragerdi.is og þeim skal skilað á skrifstofu Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2, eða á mottaka@hveragerdi.is

Nánari upplýsingar veitir Anna Erla Valdimarsdóttir, leikskólastjóri í síma 4834234 og 8678907 og undraland@hveragerdi.is


Síðast breytt: 1. ágúst 2017
Getum við bætt efni síðunnar?