Fara í efni

Spartan race í Hveragerði


Undirbúningur er nú hafinn í Hveragerði fyrir langstærsta utanvega hindrunarhlaup sem haldið hefur verið á Íslandi. Það er fyrirtækið Spartan race sem tekið hefur Hamarshöllina á leigu í tæpan hálfan mánuð og er að breyta henni í miðstöð hlaupsins og er einnig að setja upp hindranir á hlaupaleiðinni sem er 10 km að lengd.

Keppendur hlaupa samfellt í 24 tíma í 10 km braut sem lögð hefur verið upp um fjöll og heiðar í kringum Hveragerði. Á leiðinni hefur verið komið upp fjölbreyttum en ögrandi hindrunum sem keppendur verða að leysa. Sá sigrar sem fer flesta hringi á 24 tímum.

Þetta er í annað sinn sem Spartan race hlaupið fer fram hér í Hveragerði en á síðasta ári fór keppnin fram síðustu helgina fyrir jól og voru þátttakendur hátt í eitt þúsund. Sami fjöldi hefur skráð sig til þátttöku nú í ár í þessari gríðarlegu erfiðu keppni þar sem þeir bestu úr hópi þeirra bestu etja kappi.

Fyrir þá sem ekki treysta sér í fulla 24 tíma keppni má geta þess að ræst verður í tvígang á þessum sólarhring til keppni um einn hring, svokallað sprint. Að sögn þeirra heimamanna sem tóku þátt í þeirri keppni í fyrra dugar það flestu venjulegu fólki i virkilega góðu formi.

Full ástæða er til að hvetja heimamenn og aðra til að gera sér ferð í Hamarshöllina þann 8. desember til að verða vitni að því sjónarspili sem þá fer fram. Fyrir þá sem vilja horfa á keppnina út um gluggann í Hveragerði má geta þess að ljósakeðjan upp og niður Reykjafjall er mynduð af keppendum sem glíma við fjallið í heilan sólarhring.

Hamarshöllin er opin allan keppnistímann og þar inni er sannkölluð karnival stemning sem enginn ætti að missa af. Öllum er velkomið að koma við og sjá hvað þarna fer fram.

Skoðið myndbandið sem tekið var í desember 2017 hér https://vimeo.com/251565371


Síðast breytt: 30. nóvember 2018
Getum við bætt efni síðunnar?