Fara í efni

Sóli Hólm með uppistand á Skyrgerðinni

Sóli Hólm stígur mætir á heimaslóð með splunkunýja sýningu sem hefur slegið í gegn í Bæjarbíói í Hafnarfirði.

Sýningin ber heitið Varist eftirhermur!
Lýsandi titill þar sem fáir hér á landi geta brugðið sér í líki jafnmargra þjóðþekktra Íslendinga og Sóli Hólm. Sóli Hólm sló í gegn á síðasta ári þegar hann setti sína fyrstu uppistandssýningu á svið í byrjun árs. Sýningarnar áttu upphaflega að vera fjórar en urðu á endanum 35. Þà sýningu notaði Sóli meðal annars til að gera upp baráttu sína við krabbamein sem hann sigraðist á árið 2017. Nú einbeitir Sóli sér að því sem hann gerir best og það er að herma eftir.

Tryggðu þér miða á þessa frábæru skemmtun.

Miðvikudaginn 24. apríl kl. 21:00 í Skyrgerðinni.


Síðast breytt: 21. mars 2019
Getum við bætt efni síðunnar?