Fara í efni

Söguskilti um kirkjustarf í og við Hveragerði


Hveragerðisbær hlaut nýlega styrk frá styrktarsjóði Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands til gerðar söguskiltis við Hveragerðiskirkju. Styrkurinn nemur kr. 390.000,-.

Á fundi bæjarráðs var þakkað fyrir góðar viðtökur við styrkumsókn bæjarins og fól bæjarráð menningar- og frístundafulltrúa að sjá um gerð skiltisins sem gera myndi grein fyrir kirkjustarfi í og við Hveragerði í gegnum árin.

Í umsókn Hveragerðisbæjar kom meðal annars eftirfarandi fram:

Á undanförnum árum hefur verið unnið ötullega að uppsetningu söguskilta í bæjarfélaginu og nú eru þau orðin 11 talsins. Í þessu eins og mörgu öðru sannast að góðir hlutir gerast hægt en með einu skilti á ári, svona nokkurn veginn, hefur þetta tekist. Í dag er því hægt að ganga góðan hring um okkar fallega bæ og fræðast um leið um sögu, náttúru og mannlíf á staðnum.

Hefur þessum veglegu skiltum meðal annars verið komið upp með tilstilli Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands sem styrkt hefur gerð þeirra reglulega.

Í ár, 2018, hefur bæjarstjórn hug á að setja upp skilti við Hveragerðiskirkju þar sem gerð yrði grein fyrir langri kirkjusögu í og við Hveragerði. Lengi var til dæmis kirkja á Reykjum hér fyrir ofan bæinn. Trúlega frá upphafi kristni en þar var prestssetur fram yfir siðbreytingu. Reykir koma töluvert við kristnisögu landsins, ekki síst á siðbótartímanum. Ögmundur biskup Pálsson átti eða hafði ráð á jörðinni og dvaldi þar löngum. Oddur Gottskálksson bjó þar í sex ár eftir að hann hafði lokið þýðingu og útgáfu Nýja testamentisins og vann að þýðingum og bókaútgáfu.

Kirkjan að Reykjum fauk af sökkli sínum í ofsaverði í byrjun síðustu aldar. Þá var kirkjan flutt niður að Arnarbæli í Ölfusi þar sem sóknarprestur sveitarinnar sat lengi með mikilli prýði. Þar er nú allt komið í eyði og kirkjan er horfin Þá byggðist Kotströnd, kirkjan við veginn, sem er þekkt víða fyrir útlit, staðsetningu og fegurð. En fljótlega þótti Hvergerðingum í hinu unga sveitarfélagi illt að hafa ekki kirkju innan sinna marka. Bygging Hveraerðiskirkju hófst árið 1967 og var kirkjan vígð 14. maí 1972. Í dag er hin glæsilega Hveragerðiskirkja eitt af höfuðtáknum byggðarinnar hér í Hveragerði.

Þessari sögu allri langar bæjarstjórn að gera ítarlegri skil á söguskilti sem staðsett yrði við Hveragerðiskirkju og yrði það þar með hluti af söguskiltaröð bæjarins.

Meðfylgjandi mynd sýnir systkinin frá Laugaskarði, Ester, Þorstein og Jóhönnu, afhjúpa söguskilti um sundlaugina Laugaskarði.


Síðast breytt: 2. júlí 2018
Getum við bætt efni síðunnar?