Fara í efni

Smásögur Kiefer og Freydísar verðlaunaðar

Fimmtudaginn 8.mars síðast liðinn voru kunngerð úrslit í ensku smásagnakeppninni sem félag enskukennara á Íslandi (FEKÍ) stendur fyrir. Tveir nemendur Grunnskólans í Hveragerði unnu til verðlauna.

Smásagnakeppnin er haldin árlega og hefst hún á evrópska tungumáladeginum þann 26. september.

Grunnskólinn í Hveragerði hefur mörg undanfarin ár tekið þátt í þessari skemmtilegu keppni með eftirtektarverðum árangri. Að sögn Ólafs Jósefssonar, enskukennara, er því ekki síst að þakka að nemendur skólans hafa sýnt keppninni sífellt meiri áhuga og lagt mikinn metnað í sögurnar sínar.

Að þessu sinni unnu tveir nemendur skólans til verðlauna; Kiefer Rahhad Arabiyat í 5. bekk hlaut 1.-2. verðlaun í flokknum 5. bekkur og yngri og Freydís Ósk Martin í 6. bekk hlaut 2. verðlaun í flokknum 6.- 7. bekkur.

Verðlaunaafhendingin fór fram á Bessastöðum, þar sem Eliza Reid forsetafrú tók á móti vinningshöfum og heiðraði þau, ásamt stjórn FEKÍ.

!img:400 !img:400


Síðast breytt: 14. mars 2018
Getum við bætt efni síðunnar?