Skóflustunga að nýjum gervigrasvelli
Formleg skóflustunga var tekin að nýjum gervigrasvelli á íþróttasvæði Hamars síðastliðinn föstudag fyrir leik Hamars og Ýmis í 4. deild karla í knattspyrnu. Halldór Benjamín Hreinsson, forseti bæjarstjórnar, Þorsteinn Ragnarsson, formaður Hamars, og Eydís Valgerður Valgarðsdóttir, formaður knattspyrnudeildar Hamars, tóku skóflustunguna og nutu við það liðsinnis ungra knattspyrnuiðkenda félagsins.
Að lokinni skóflustungunni bauð Hveragerðisbær upp á Pylsur og gos áður en viðstaddir færðu sig yfir á Grýluvöll til að fylgjast með leik Hamars og Ýmis. Heimamenn gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 5-2.
Jarðvinna er þegar hafin vegna nýja vallarins en það er verktakinn Auðverk ehf. sem sér um jarðvegsvinnuna í fyrsta fasa verksins.
Gert er ráð fyrir að æfingar hefjist á nýju gervigrasi snemmvetrar 2024.