Fara í efni

Sjóðurinn góði

Sjóðurinn góði er samstarfsverkefni sóknarkirkja í Árnessýslu, Rauða krossins, félagsþjónustu Árborgar, félagsþjónustu Árnesþings og ýmissa félagasamtaka í Árnessýslu.

Þetta samstarf hefur staðið síðan árið 2008 og hefur þann tilgang að veita aðstoð fyrir jólahátíðina til handa þeim sem ekki eiga fyrir nauðþurftum. Síðustu ár hefur sjóðurinn einnig verið í samstarfi við Hjálparstofnun kirkjunnar varðandi þessa aðstoð. Skipuleggjendur eru sammála um að mikil þörf sé fyrir aðstoð við þá sem glíma við fjárhagserfiðleika, sbr. nýlegar fréttir um fátækt barna á Íslandi.

Ákveðna daga var hægt að sækja um fjárhagsaðstoð úr sjóðnum, í Selinu við Engjaveg 44. Aðstoðin er í formi korta sem eingöngu er hægt að nýta í matvöruverslunum í Árnessýslu. Umsækjandi þarf að skila gögnum um tekjur og útgjöld fyrir sig og maka.

Í ár hefur sú staða komið upp að Sjóðurinn á ekki innistæðu til að þess að veita umsækjendur þá upphæð sem upphaflega stóð til vegna fjölda umsókna. Til að þurfa ekki að skera niður upphaflega úthlutunarupphæð freistum við þess að leita til fyrirtækja hér á svæðinu eftir styrk.

Þeim sem nú þegar hafa styrkt Sjóðinn þökkum við kærlega fyrri stuðninginn.

Með góðum kveðjum að þakklæti fyrir hönd Sjóðsins góða

Reikningsnúmer sjóðins er: 325-13-301169, kennitala 5602692269.

Þessi reikningur er í vörslu Selfosssóknar og lýtur sama hætti og aðrir reikningar sóknarinnar.


Síðast breytt: 14. desember 2018
Getum við bætt efni síðunnar?