Fara í efni

Síðasti séns að skila inn svörum úr jólagluggunum

Í desember var hægt að sjá skreytta glugga opnast einn af öðrum hjá fyrirtækjum í bænum og hver gluggi hafði eina setningu með í útstillingunni. Þegar setningarnar eru settar saman mynda þær fallegt jólalag eftir tónlistarmann sem býr í Hveargerði.

Enn er hægt að taka þátt í þessum skemmtilega leik og til þess þarf að senda inn svör við eftirfarandi spurningum:

Hvað heitir jólalagið?

Hver er höfundur lagsins?

Einnig er hægt að útnefna fallegasta jólagluggann og frumlegasta gluggann og vegleg verðlaun eru í boði.

Tilnefningar og lausnir skal senda á mottaka@hveragerdi.is fyrir 10. janúar næstkomandi.

 


Síðast breytt: 4. janúar 2021
Getum við bætt efni síðunnar?