Fara í efni

Samningur gerður við Foreldrafélag leikskólanna

Undirritaður hefur verið samningur milli Foreldrafélags leikskólanna Undralands og Óskalands. Samningnum er ætlað að efla samstarf bæjaryfirvalda í Hveragerðisbæ og Foreldrafélags leikskólanna og tryggja öflugt æskulýðs- og forvarnarstarf fyrir börn í Hveragerði samkvæmt stefnu bæjaryfirvalda þar um.

Í samningnum er gert ráð fyrir að félagið skipuleggi vor/sumarhátíð, útskriftarferð 5 ára barna, myndatöku ár hvert og aðra viðburði í samráði við leikskólastjóra Undralands og Óskalands. Eitt stærsta verkefni félagsins er að árlega hefur félagið gefið öllum börnum á leikskólum bæjarins bókagjöf á degi íslenskrar tungu

Hlutverk bæjarins er að sjá um innheimtu félagsgjalda félaginu að kostnaðarlausu en auk þess greiðir bæjarfélagið félaginu rúmlega 800 þúsund á samningstímabilinu.

Á myndinni má sjá Droplaugu Guttormsdóttur, formann félagsins, ásamt dóttur sinni, Berglindi Maríu, og bæjarstjóra við undirritunina.


Síðast breytt: 10. nóvember 2017
Getum við bætt efni síðunnar?