Fara í efni

Reglur um niðurgreiðslu garðsláttar

Á fundi bæjarráðs Hveragerðisbæjar þann 6. júní 2019 var lagt fram minnisblað frá forstöðumanni stuðningsþjónustu og málefna aldraðra vegna reglna um niðurgreiðslu garðsláttar fyrir eldri borgara og öryrkja.

Bæjartjórn staðfesti umræddar reglur á fundi sínum þann 13. júní 2019.

Reglurnar eru svohljóðandi:

  1. Tímabil niðurgreiðslu verði frá 15.maí-31.ágúst.

  2. Niðurgreiðsla verði 50% af heildarreikningi en þó að hámarki 7.500 kr. fyrir hvert skipti.

  3. Notendur félagslegrar heimaþjónustu og aðrir sem undirrituð metur þess þurfa fái niðurgreiðslu á garðslætti sumarið


  4. Lagt er til að reglur og fyrirkomulag verði endurskoðað fyrir sumarið 2020.

Þessi afgreiðsla bæjarstjórnar tilkynnist hér með.


Síðast breytt: 20. maí 2021
Getum við bætt efni síðunnar?