Fara í efni

Plastlaus september

Hveragerðisbær vill minna íbúa á að nú stendur yfir plastlaus september. Þessu átaki er ætlað að hvetja til minni plastnotkunar og vekja almenning til umhugsunar um skaðsemi plasts í náttúrunni, og þá sérstaklega einnota plasts.

!-img:170 Plast er samheiti yfir ýmsar fjölliður sem framleiddar eru af manninum, að mestu úr olíu en koma ekki fyrir náttúrulega. Vegna þess að þessi efni finnast ekki í náttúrunni er þar heldur ekki niðurbrotsferlar til staðar sem eyða þeim. Þetta leiðir til þess að plast eyðist afar hægt og jafnvel nánast ekki. Plastið safnast því fyrir í náttúrunni þar sem það getur valdið lífverum ýmsum skaða.

!img-:200 Það er því mikilvægt að minnka það plast sem berst út í náttúrunna sem mest og ein besta leiðinn til þess er að draga úr notkun eins og mögulegt er. Hveragerðisbær stefnir einnig á það að draga úr notkun plastpoka og helst að losna alveg við þá úr bæjarfélaginu, því er nú gott tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi með því að taka þátt í átakinu og á sama tíma að minnka bæði plastpokanotkun og aðra plastnotkun í Hveragerði og þar með stuðla að hreinna, umhverfisvænna og betra samfélagi.

Allir eru hvattir til að kynna sér heimasíðu átaksins plastlaus september á heimasíðu verkefnisins: hér!

Umhverfisfulltrúi


Síðast breytt: 8. september 2017
Getum við bætt efni síðunnar?