Orðsending frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og staða mála varðandi neysluvatn
Eftirfarandi er orðsending frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands frá 28. mars 2025:
Niðurstöður úr sýnatökum sem bárust fyrr í dag benda til að lyktar- og bragðgallar vatnsins orsakist af mengun úr jarðvegi. Mögulega hafi borun nýrrar neysluvatnsborholu á svæðinu komið hreyfingu á jarðveginn og orsakað skert gæði neysluvatns en ekki öryggi. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands ítrekar að vatnið er ekki talið heilsuspillandi þrátt fyrir að gæði þess séu ekki viðunandi.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bendir á að útskolun úr kerfinu getur tekið tíma og á meðan það ástand varir geta þeir sem kjósa notað flöskuvatn.
Stöðuuppfærsla frá Hveragerðisbæ:
Ástand neysluvatnsins í Hveragerði er vel vaktað og regluleg sýni eru og verða áfram tekin og rannsökuð. Áfram er unnið að því að greina hvað orsakar bragð- og lyktargalla í neysluvatninu með margskonar prófunum, athugunum og útskolun úr vatnsveitukerfi bæjarins. Sú vinna er í forgangi hjá bænum.