Opnun tilboða vegna jarðvinnu við Leikskólann Óskaland
Opnun tilboða/verðkönnunar í verkið ,,Leikskólinn Óskaland - Jarðvinna" fór fram föstudaginn 25. ágúst 2023, kl. 11:00 á skrifstofu Hveragerðisbæjar að Breiðumörk 20.
Verkið er jarðvinna vegna viðbyggingar við leikskólann Óskaland, Hveragerði.
Verklok eru 14. október, 2023.
Byggingarfulltrúi sá um framkvæmd opnunarinnar.
Verkkaupi er Hveragerðisbær.
Tilboð skulu vera í samræmi við útboðsgögn Eflu Verkfræðistofu.
Engar athugasemdir bárust við útboðsgögn eða útboð.
Bjóðendur og tilboðsfjárhæð (kr.)
Aðalleið ehf. bauð 21.590.000 (64.1%)
Hverafell ehf. bauð 47.534.600 (141,1%)
SS verktakar ehf. (tilboð b) bauð 43.510.000 (129,1%)
SS verktakar ehf. (tilboð a) bauð 45.910.000 ( 136,2%)
Jarðtækni ehf. bauð 25.442.000 (75,5%)
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 33.700.000 kr.
Engar athugasemdir voru gerðar við framkvæmd opnunar tilboða.
Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 11:05.