Fara í efni

Naktir í nátturunni - sýningar að hefjast

Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni „ The full monty.“ Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni.

Geta má þess að Leikfélag Hveragerðis er 70 ára á þessu ári og hafa verið settar upp sýningar öll árin, ein eða fleiri. Meðal annara fléttast inn í þetta Eden og Tívolíið sáluga, Kjörís, Heilsustofnun, Hótel Örk svo eitthvað sé nefnt, einnig kjararáð og búvörusamningar og fleira.

Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem myndin sem fylgir fréttinni sýnir. Sérstaklega bera þeir hag félaga síns fyrir brjósti þar sem hann er atvinnulaus og á það á hættu að missa samband við son sinn borgi hann ekki meðlagið.

Leikarar eru 18 talsins og þar á meðal all nokkrir sem ekki hafa leikið með Leikfélagi Hveragerðis áður.

Föstudagurinn 27.janúar fumsýning uppselt

2.sýning laugardaginn 28.janúar

3.sýning sunnudaginn 29.janúar

Allar sýningar byrja kl: 20:00

Miðaverð er kr. 3,000- . Fyrir hópa 10 eða fleiri kr.2,500

Fylgjast má með á facebookarsíðu Leikfélagsins.

Miðapöntunarsími 863-8522.

Sýnt er í Leikhúsinu Austurmörk 23.


Síðast breytt: 25. janúar 2017
Getum við bætt efni síðunnar?