Fara í efni

Munið eftir frístundastyrknum vegna ársins 2019

Athygli foreldra og forráðamanna barna og ungmenna í Hveragerði er vakin á því að frestur til að sækja um frístundastyrk vegna ársins 2019 er til 31. janúar. Að þeim tíma liðnum verður ekki tekið við kvittunum vegna ársins 2019.

Á árinu 2020 mun frístundastyrkurinn nema kr. 25.000,- pr. barn frá 0-18 ára aldri. Sækja ber um á eyðublöðum á skrifstofunni og framvísa kvittun fyrir greiðslu frá viðurkenndu tómstundastarfi.


Síðast breytt: 24. janúar 2020
Getum við bætt efni síðunnar?