Fara í efni

Miklar skemmdir unnar á Lystigarðinum

Unnar hafa verið miklar skemmdir á grasflötinni í Lystigarðinum með því að aka vespum eða álíka ökutækjum þar. Grasflötin er viðkvæm nú þegar svo mikið rignir en það virðist draga að sér skemmdarvarga sem hafa gaman af því að eyðileggja þennan fallega garð okkar. Nýlega lauk garðyrkjudeild bæjarins við að þökuleggja í sár í garðinum en nú er mikið af þeirri vinnu unnið fyrir gíg. Ef fram heldur sem horfir þá verður þessi grasflöt endanlega að svaði og mun þá ekki nýtast til hátíðarhalda eins og verið hefur og Lystigarðurinn ekki sama prýði sem við höfum verið stolt af. 

Þetta er langt því frá í fyrsta skipti sem skemmdarverk eru unnin á grasflötinni en líklegast eru þessi þau verstu hingað til.

Þetta gerist ekki í tómarúmi og einhver veit hverjir þessir aðilar eru. Við hvetjum þá sem hafa einhverjar upplýsingar að snúa sér til Lögreglunar á Suðurlandi í tölvupóstfangið: sudurland@logreglan.is



Síðast breytt: 25. júlí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?