Fara í efni

Leikskólastjóri óskast

Staða leikskólastjóra Leikskólans Undralands er laus til umsóknar

Hveragerðisbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu leikskólastjóra hjá leikskólanum Undralandi í Hveragerði, sem er þriggja deilda leikskóli sjá nánar http://www.undraland.hveragerdi.is

Starfsvið:

  • Leikskólastjóri stýrir og ber ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans og veitir skólanum faglega forstöðu á sviði kennslu og þróunar. Vakin er athygli á að um tímabundna ráðningu er að ræða vegna veikinda til 1. maí 2018.

Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi leikskólakennaramenntun, en framhaldsnám sem nýtist í starfi er jafnframt æskilegt. Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum er skilyrði auk skipulagshæfni, frumkvæðis, sjálfstæðis og fagmennsku í vinnubrögðum.

Áhersla er lögð á áhuga og metnað til árangurs í starfi. Reynsla af stjórnun leikskóla er æskileg.


Í boði er áhugavert starf í barnvænu umhverfi, en Hveragerði er ört vaxandi sveitarfélag með um 2.500 íbúa. Um er að ræða framúrskarandi góðar samgönguleiðir (aðeins 30 mín. akstur til Reykjavíkur), öll þjónusta í bæjarfélaginu er eins og best verður á kosið, leikskólar, grunn- og framhaldsskólar, sem og tónlistarskóli eru innan seilingar. Íþrótta- og menningarlíf er í miklum blóma og umhverfi bæjarins gefur kost á fjölbreyttri útvivist í fallegu umhverfi.


Launakjör vegna ofangreinds starfs verða skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 19. desember nk. Gengið verður frá ráðningu fljótlega.

Guðný Harðardóttir hjá STRÁ ehf. veitir nánari upplýsingar um starfið í s: 588-3031 alla virka daga frá kl.13-15. Vinsamlegast sendið umsókn ásamt meðfylgjandi gögnum til stra@stra.is, sjá nánar http://www.stra.is .

Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tölul. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 464/1996, með síðari breytingum, sem settar eru með stoð í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.


Síðast breytt: 6. desember 2016
Getum við bætt efni síðunnar?