Leikskólarnir eru opnir milli jóla og nýárs
14.12
Frétt
Eftirfarandi tilkynning hefur verið send foreldrum sem börn eiga á leikskólum bæjarins:
Í ljósi umræðu í þjóðfélaginu um þjónustu leikskóla landsins yfir jól og áramót viljum við ítreka að leikskólar Hveragerðisbæjar eru opnir á milli jóla og nýárs, eða dagana 28., 29. og 30. desember og allir eru velkomnir. Alla jafna mæta þó töluvert færri á þessum tíma og til að geta skipulagt innkaup á matvörum og flutninga máltíða milli leikskólanna, hafa foreldrar verið beðnir um að láta vita á deildum ef vitað er hvernig börnin muni mæta yfir hátíðirnar.
Síðast breytt: 14. desember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?