Fara í efni

Leikskólakennarar óskast á Óskaland

Leikskólakennarar óskast á allar deildir frá 14.ágúst n.k.

Leikskólinn er 4ra deilda skóli fyrir börn á aldrinum 16 mánaða til 5 ára.

Leikskólinn starfar í anda Reggio Emilia. Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum einstkaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þurfa að vera tilbúinir til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa góða íslenskukunnáttu.

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og eða reynslu kemur vel til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður!

Umsóknarfrestur er til 23.júní n.k.

Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2, 810 Hveragerði.

Umsóknareyðublað

Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is

Starfið hentar jafnt konum sem körlum.

Laun samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.


Síðast breytt: 6. júní 2017
Getum við bætt efni síðunnar?