Laust starf í boði við félagslega stoð- og stuðningsþjónustu (liðveisla)
Félagsleg stoð- og stuðningsþjónusta (liðveisla) við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Hveragerðisbær leitar að starfsmönnum til að sinna félagslegri stoð- og stuðningsþjónustu (félagsleg liðveisla) við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Starfið felur í sér að veita félagslegan stuðning sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun þjónustuþega og hefur það markmið að styðja og hvetja til þátttöku þeirra í félags- og tómstundastarfi o.fl.
Félagsleg stoð- og stuðningsþjónusta tekur mið af einstaklingsbundnum þörfum og miðar að valdeflingu og hvatningu til virkrar þátttöku í samfélaginu. Leitast er við að koma til móts við einstaklingsbundnar óskir og þarfir Þjónustuþega.
Starfsmönnum í Félagslegri stoð- og stuðningsþjónustu ber að hafa í heiðri trúnað í samskiptum við þjónustuþega og gæta þagmælsku um þau atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu.
Helstu verkefni og ábyrgð.
- Að koma til mót við óskir þjónustuþega, sem geta verið bæði börn og fullorðnir einstaklingar, að félagslegri afþreyingu.
- Að fylgja þjónustuþega og veita honum stuðning í félagsri afþreyingu. Félagsleg afþreying getur verið af ýmsum toga, má m.a. nefna göngutúra, bíóferðir, sundferðir, kaffihúsaferðir, spjall og félagsskapur o.m.fl.
- Að hitta Þjónustuþega reglulega samkvæmt samningi og samþykktum klukkustundafjölda á mánuði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Engar sérstakar menntunarkröfur.
- Að hafa lipurð í mannlegum samskiptum.
- Samviskusemi, frumkvæði, áreiðanleiki.
- Stundvísi og heiðarleiki.
- Mælst er til að starfsmaður geti talað íslensku.
- Að sýna þjónustuþega sínum og aðstandendum hans virðingu og skilning í samskiptum.
- Að vera með hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hveragerðisbæjar.
- Gott að hafa þekkingu eða reynslu í vinnu með fólki með fatlanir.
Starfsmenn í félagslegri stoð- og stuðningsþjónustu fá tímavinnukaup frá Hveragerðisbæ og gilda launakjör samkvæmt kjarasamningum FOSS, Félagi opinberra starfsmanna á Suðurlandi.
Hægt er að senda umsókn í gegnum íbúagátt Hveragerðis. Einnig er hægt að senda umsókn á netfangið ninak@hveragerdi.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Nína Kjartansdóttir ráðgjafarþroskaþjálfi í síma 483-4000 eða í gegnum netfangið: ninak@hveragerdi.is