Lausar stöður við Grunnskólann í Hveragerði
03.06
Frétt
Lausar eru eftirfarandi kennarastöður við Grunnskólann í Hveragerði:
- Umsjónarkennsla á miðstigi
- danska
- tónmennt
Um skólann
Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi. Í skólanum eru um 470 nemendur og við hann starfar vel hæft og menntað starfsfólk. Einkunnarorð skólans eru; viska, virðing og vinátta og einkennist daglegt starf skólans af þeim.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Faglegur metnaður og skipulagshæfni.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
Aðstæður og kjör
Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands (FG).
Umsóknir
Umsóknarfrestur er til 11. júní. Frekari upplýsingar veita Sævar Þór Helgason skólastjóri eða Matthea Sigurðardóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 483-0800. Skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað í tölvupósti saevar@hveragerdi.is
Skólastjóri
Síðast breytt: 10. júlí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?