Fara í efni

Krumminn kominn út á ný

Krumminn er kominn út á ný eftir nokkurt hlé.  Í Krummanum má nú lesa fjölbreyttar fréttir og viðtöl, sjá myndir af nýfæddum börnum og lesa viðtöl við Hvergerðinga svo fátt eitt sé talið. 

Krumminn er heimablaðið okkar hér í Hveragerði og er full ástæða til að hvetja Hvergerðinga til að nýta sér þennan miðil til skoðanaskipta, greinaskrifa og til að auglýsa vörur og þjónustu.   Hrund Guðmundsdóttir er ritstjóri og ábyrgðarmaður blaðsins og vefsíðunnar sem ber sama nafn www.krumminn.is  og óskum við henni til hamingju með þetta flotta framtak. 

Blaðið er ekki borið út en áhugasamir geta nálgast það á bensínstöðvum, í Bónus á bæjarskrifstofunni og víða annars staðar. 


Síðast breytt: 21. júlí 2020
Getum við bætt efni síðunnar?