Fara í efni

KK og Gaukurinn á Skyrgerðinni

KK og Gaukur verða á ferð um landið í haust.

Þeir munu spila úrval af lögum KK og aðrar hugljúfar dillandi melódíur. KK er landsmönnum kunnur en Gaukur er að hasla sér völl. Hann hefur m.a. verið að spila á munnhörpu með Kaleo undanfarið. Með KK verður hann töluvert að spila slide gítar eða Hawaii gítar eins og það er líka kallað og raddar í bluegrass stíl. KK ætlar að vígja nýjan gítar á túrnum, forlátan Collings gítar frá Texas. Og allt verður þetta flutt gegnum 1 hljóðnema. Þetta gæti orðið ansi skemmtilegt.


Síðast breytt: 4. september 2019
Getum við bætt efni síðunnar?