Fara í efni

Kjörfundur í Hveragerði 26.maí 2018

Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 26. maí 2018 hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00 þann dag í Grunnskólanum í Hveragerði. Gengið er inn um aðalinngang við íþróttahúsið.

Sérstök athygli skal vakin á eftirfarandi:

Kjósandi, sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Þá er ekki heimilt að vera með áróður á eða við kjörstað meðan á kjörfundi stendur svo sem barmmerki og/eða merkingar á bifreiðum.

Frá kl 13:00 til kl 17:00 verða tvær kjördeildir opnar. Í kjördeild 1 kjósi þeir sem hafa heimilisfang frá A-J og í kjördeild 2 kjósi þeir sem hafa heimilisfang frá K-Ö.

Hveragerði maí 2018 Kjörstjórnin í Hveragerði.


Síðast breytt: 25. maí 2018
Getum við bætt efni síðunnar?