Íþróttamaður Hveragerðis 2024 - tilnefningar óskast
Íþróttamaður Hveragerðis verður heiðraður við athöfn í Listasafni Árnesinga sunnudaginn 5. janúar 2025 kl. 17.
Óskað er eftir tilnefningum frá íþróttafélögum, sérsamböndum ÍSÍ og almenningi. Samkvæmt reglugerð bæjarins getur sá orðið Íþróttamaður Hveragerðis sem er íslenskur ríkisborgari og hefur náð 16 ára aldri á því ári sem tilnefnt er fyrir. Erlendur ríkisborgari sem hefur skv. Þjóðskrá haft lögheimili á Íslandi samfellt í þrjú ár er einnig gjaldgengur.
Við sama tækifæri verða sérstaklega heiðraðir þeir íþróttamenn sem hafa unnið Íslandsmeistaratitil eða verið valdir í landslið á árinu og óskast því einnig upplýsingar um það íþróttafólk sem keppt hefur fyrir landslið Íslands á árinu.
Tilnefningar til íþróttamanns Hveragerðis ásamt rökstuðningi fyrir valinu óskast sendar til Sigríðar Hjálmarsdóttur, menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa, fyrir 17. desember nk. á netfangið sigridurhj@hveragerdi.is.