Fara í efni

Innviði þarf að tryggja með öllum ráðum

Vegna óveðursins og þeirra atburða og röskunar sem það olli víða á landinu samþykkti bæjarstjórn Hveragerðisbæjar eftirfarandi bókun á fundi sínum þann 12. desember síðastliðinn.

Í ljósi atburða undanfarinna daga og þess rofs á nauðsynlegri þjónustu sem víða varð vill bæjarstjórn Hveragerðisbæjar taka heilshugar undir þá kröfu íbúa og sveitarstjórnarmanna að lífsnauðsynlega innviði samfélagsins verður að tryggja með öllum tiltækum ráðum um land allt. Björgunarfólk og viðbragðsaðilar um allt land hafa unnið þrekvirki undanfarna daga og fyrir það verður aldrei fullþakkað.

 

Síðast breytt: 24. janúar 2020
Getum við bætt efni síðunnar?