Fara í efni

Ingibjörg hlýtur Umhverfisviðurkenninguna 2022

Ingibjörg Sigmundsdóttir handhafi Umhverfisviðurkenningar Hveragerðisbæjar 2022 með Aldísi Hafsteins…
Ingibjörg Sigmundsdóttir handhafi Umhverfisviðurkenningar Hveragerðisbæjar 2022 með Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra, Bryndísi Eir Þorsteinsdóttur, formanni Umhverfisnefndar og Gunnari Þorgeirssyni, formanni Bændasamtaka Íslands sem ásamt Bryndísi afhenti viðurkenninguna fyrir hönd Hveragerðisbæjar.

Ingibjörg Sigmundsdóttir, fyrrverandi eigandi Garðyrkjustöðvar Ingibjargar er handhafi Umhverfisviðurkenningar Hveragerðisbæjar árið 2022. Afhending viðurkenningarinnar fór fram á Garðyrkjuskólanum að Reykjum á Sumardaginn fyrsta að viðstöddu fjölmenni.

Í ræðu sem Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri, hélt af þessu tilefni kom fram að Ingibjörg væri alin upp með blómum og gróðri. Foreldrar hennar þau Sigmundur K. Guðmundsson og Kristín Jónsdóttir hófu rekstur garðyrkjustöðvar í bakgarðinum hjá sér, í Hveragerði, árið 1953. Hét stöðin þá Garðyrkjustöð Sigmundar. Árið 1980 keyptu Ingibjörg og eiginmaður hennar, Hreinn Kristófersson, stöðina og ráku allt til ársins 2017 undir nafninu Garðyrkjustöð Ingibjargar. En þá selja þau stöðina til nýrra eigenda er nú reka þar nú Flóru garðyrkjustöð.

En garðyrkjumenn geta sjaldnast setið auðum höndum. Þegar að Ingibjörg hætti rekstri garðyrkjustöðvarinnar stofnaði hún ásamt öðrum dugmiklum sérfræðingum á sviði garðyrkju sjálfboðaliðahópinn, Vini Fossflatar, sem tekið hafa að sér ýmis konar störf við umhirðu, skipulag og uppbyggingu Lystigarðsins Fossflöt.

Umhverfisviðurkenningu Hveragerðisbæjar hlýtur Ingibjörg ekki síst fyrir þetta starf og það frumkvæði sem hún hefur sýnt varðandi stórt fjölæringabeð í lystigarðinum, en hún hefur af miklum dugnaði komið upp og séð um fjölæringabeð við inngang garðsins. Hún hefur eitt ófáum tímum í þessa vinnu og er afrakstur þeirrar vinnu einstakur. Ingibjörg hefur valið plöntur af mikilli innsýn og kostgæfni. Beðið sker sig úr öðrum þar sem fjölæringabeð hefur ekki áður verið hluti af lystigarðinum og er hreinlega nokkur nýlunda hér á landi. Plöntur hefur hún valið í þetta stóra beð með það fyrir augum að frá því snemma vors og fram eftir hausti séu sífellt nýjar plöntur að skjóta upp kollinum meðan aðrar blómgast og þannig er hægt að njóta blómskrúðs mun lengur en ef um hefðbundið beð sumarblóma aværi að ræða.

Ingibjörgu eru færðar hamingjuóskir og innilegar þakkir vegna framlags hennar til umhverfismála í Hveragerði.

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri 


Síðast breytt: 22. apríl 2022
Getum við bætt efni síðunnar?