Fara í efni

Íbúar Hveragerðisbæjar ánægðir með bæjarfélagið


Viðhorfskönnun Capacent árið 2016 var lögð fram á fundi bæjarstjórnar þann 9. febrúar s.l. Í könnuninni er ánægja með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins könnuð. Gerður er samanburður á milli þeirra ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum.

Á fundinum bókaði bæjarstjórn eftirfarandi:

Bæjarstjórn þakkar Gallup fyrir vel unna könnun og greinargott yfirlit sem nýtast mun bæjarstjórn vel við framtíðarstefnumörkun sem miðar að því að bæta í sífellu þjónustu við bæjarbúa.

Bæjarstjórn fagnar einnig þeim góðu niðurstöðum sem sjást í könnuninni en ánægja bæjarbúa er meiri nú í nær öllum flokkum en síðast þegar könnunin var framkvæmd. Ennfremur er ánægjulegt að sjá að Hvergerðingar eru meðal ánægðustu íbúa landsins í flestum þjónustuþáttum og skipar sveitarfélagið sér þar í hóp efstu sveitarfélaga ítrekað. Hveragerðisbær er langt yfir meðaltali sveitarfélaga í mörgum þáttum og skipar sér í efsta sæti t.d. hvað varðar málefni eldri borgara, skipulagsmál, menningu og gæði umhverfis svo dæmi sé tekið. En 92% aðspurðra eru mjög eða frekar ánægð með sveitarfélagið sem stað til að búa á. 7% hvorki né og einungis 1% er óánægt með sveitarfélagið sitt. Hefur hlutfall þeirra sem eru mjög ánægðir aukist ár frá ári og er það gleðilegt.

Bæjarstjórn lítur á könnunina sem mikilvægt hjálpartæki þegar kemur að forgangsröðun verkefna og hefur tekið tillit til þeirra upplýsinga og vísbendinga sem þarna koma fram. Í ár er ljóst að ánægja með leikskóla hefur heldur dalað og má þar án vafa kenna um fjölgun barna og vöntun á dagvistunarúrræðum. Við þessu er nú verið að bregðast með byggingu nýs glæsilegs leikskóla og því vonum við að á næsta ári muni þess sjá merki í könnun þess árs.

Hér má sjá niðurstöður Gallup: http://www.hveragerdi.is/files/589dcd00bf7d1.pdf


Síðast breytt: 13. febrúar 2017
Getum við bætt efni síðunnar?