Fara í efni

Í hvernig samfélagi vilt þú búa ?

„Í hvernig samfélagi vilt þú búa?“ Íbúafundir um mögulega sameiningu sveitarfélaganna í Árnessýslu.

Nú stendur yfir greining á kostum og göllum þess að sameina sveitarfélögin í Árnessýslu í eitt sveitarfélag. Verkefninu er stýrt af samstarfsnefnd sveitarfélaganna og ráðgjafarsviði KPMG. Boðað er til íbúafunda vegna þessa verkefnis í hverju sveitarfélagi fyrir sig:

Bláskógabyggð – Aratunga í Reykholti – fimmtudaginn 18. maí kl. 19:30
Grímsnes- og Grafningshreppur – Borg í Grímsnesi – mánudaginn 22. maí kl. 19:30
Árborg – Hótel Selfoss – þriðjudaginn 23. maí kl. 19:30
Hrunamannahreppur – félagsheimili Hrunamanna - mánudaginn 29. maí kl. 20:00
Hveragerðisbær – Grunnskóli Hveragerðis – þriðjudaginn 30. maí kl. 19:30
Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Árnes – miðvikudaginn 31. maí kl. 19:30
Flóahreppur – Þingborg – fimmtudaginn 1. júní kl. 19:30 Ölfus – Versalir í Ráðhúsi Ölfuss – miðvikudaginn 7. júní kl. 19:30

Hver fundur stendur yfir í um 2 klukkustundir.

Dagskrá íbúafundanna er svohljóðandi:

  1. Stutt ávarp fulltrúa viðkomandi sveitarfélags um ástæður þess að farið er í þessa vinnu.
  2. Kynning á sviðsmyndum um framtíð sveitarfélaganna.
  3. Yfirferð með íbúum um framtíðaráherslur þeirra.

Sveitarstjórnir í Árnessýslu hvetja alla íbúa til þess að mæta á þessa íbúafundi til þess að kynna sér sviðsmyndir um framtíð sveitarfélaganna. Þarna er einnig mikilvægt tækifæri fyrir íbúa til að koma skoðunum sínum á framfæri.

Fundirnir eru öllum opnir og komist íbúar ekki til fundar á auglýstum fundartíma í þeirra sveitarfélagi er þeim frjálst að mæta á einhvern hinna fundanna.


Síðast breytt: 9. maí 2017
Getum við bætt efni síðunnar?