Fara í efni

Hverfislögregla í Hveragerði

Lögreglustjóri Suðurlands hefur skipað hverfislögreglumann í Hveragerði.

Tilgangurinn með hverfislögreglumanni í hverju sveitarfélagi er að mynda tengslanet lögreglu, fá upplýsingar um stöðu mála í hverju sveitarfélagi og efla samskipti og samvinnu við samstarfsaðila. Gera löggæsluna markvissari og styðja við forvarnir og fræðslu og aðlaga þær að þörfinni á hverjum stað.

Tengiliðir hverfislögreglumanns eru bæjarstjóri, skólastjórar grunn- og leikskóla, félagsmála- og barnaverndaryfirvöld og aðrir þeir sem koma að málefnum barna og ungmenna.

Íbúar eru hvattir til að koma á framfæri við lögregluna ábendingum/athugasemdum ef þeir sjá ástæðu til þess. Það má gera í netfangið sudurland@logreglan.is eða inn á facebooksíðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Hverfislögreglumaður í Hveragerði er Einar Þorfinnsson.


Síðast breytt: 15. september 2017
Getum við bætt efni síðunnar?