Hveragerðisbær auglýsir lóðir til úthlutunar
03.09
Til úthlutunar eru eftirfarandi lóðir í fyrsta áfanga
Kambalands í Hveragerði:
6 lóðir fyrir einbýlishús
3 lóðir fyrir þriggja íbúða raðhús
4 lóðir fyrir fjögurra íbúða raðhús
Einbýlishúsalóðum er úthlutað gegn gatnagerðargjaldi eingöngu en raðhúsalóðum er úthlutað með 30% byggingarréttargjaldi til viðbótar við gatnagerðargjaldið. Við úthlutun verður farið eftir reglum Hveragerðisbæjar um úthlutun lóða. Fyrsta úthlutun fer fram þann 3. október og skulu umsóknir berast skipulagsfulltrúa/skrifstofu Hveragerðisbæjar fyrir þann tíma.
Nánari upplýsingar um lóðir, skilmála og umsóknareyðublöð er að finna á hjá skipulagsfulltrúa í síma 483-4000 eða tölvupósti á gfb@hveragerdi.is
Síðast breytt: 3. september 2019
Getum við bætt efni síðunnar?