Fara í efni

Hundahreinsun í Hveragerði 9.janúar 2018!

Hundahreinsun fer fram í Áhaldahúsi bæjarins, Austurmörk 20, þriðjudaginn 9.janúar n.k. kl. 16:00-18:00.

Eigendum óskráðra hunda gefst kostur á að skrá og greiða hundaleyfisgjald á staðnum.

ATH. enginn posi!

Hundaleyfisgjald er með skyldutryggingu kr. 18.110 við skráningu. Árlegt hundaleyfisgjald eftir það er kr. 18.710.

Eigendur hunda sem ekki hafa verið bólusettir eru varaðir við að láta þá ganga saman við aðra hunda og bent á að gæta þess sérstaklega þegar þeir mæta til hreinsunar.

Hundaeigendur sem vilja láta bólusetja hundana sína verða að greiða fyrir það sérstaklega.

Að gefnu tilefni skal bent á að samkvæmt 9. grein samþykktar um hundahald í Hveragerði mega hundar aldrei ganga lausir á almannafæri, heldur vera í fylgd með manni, sem hefur fullt vald yfir honum.

Lausagöngu hunda skal tilkynna til Kristjáns Jónssonar, dýraeftirlitsmanns, í síma 822-2299.

Bæjarstjórinn í Hveragerði


Síðast breytt: 4. janúar 2018
Getum við bætt efni síðunnar?