Hundahreinsun í Hveragerði 11. desember 2023
Hundahreinsun fer fram í Áhaldahúsi bæjarins, Austurmörk 20, mánudaginn 11. desember n.k. kl. 17:00 - 19:00.
Eigendum óskráðra hunda gefst kostur á að skrá og greiða hundaleyfisgjald á staðnum. ATH. posi á staðnum!
Hundaleyfisgjald er með skyldutryggingu kr. 17.140 við skráningu.
Árlegt hundaleyfisgjald eftir það er kr. 17.140.
Eigendur hunda sem ekki hafa verið bólusettir eru varaðir við að láta þá ganga saman við aðra hunda og bent á að gæta þess sérstaklega þegar þeir mæta til hreinsunar.
Hundaeigendur sem vilja láta bólusetja hundana sína verða að greiða fyrir það sérstaklega.
Að gefnu tilefni skal bent á að samkvæmt 9. grein samþykktar um hundahald í Hveragerði mega hundar aldrei ganga lausir á almannafæri, heldur vera í fylgd með manni, sem hefur fullt vald yfir honum.
Lausagöngu hunda skal tilkynna til Kristjáns Jónssonar, dýraeftirlitsmanns, í síma 822-2299.
Bæjarstjórinn í Hveragerði
Gjaldskrá fyrir hundahald
Samþykkt um hundahald
Umsókn um hundaleyfi