Hreyfum okkur daglega - 2
Hreyfum okkur daglega - 2
Dagleg hreyfing er mikilvæg til að viðhalda líkamlegri og andlegri getu. Hún er ekki síst mikilvæg til að auka líkamlegan og andlegan styrk og vellíðan svo að fólki gangi betur að takast á við verkefni daglegs lífs. Fullorðnir eru einnig mikilvæg fyrirmynd sem getur haft mikið að segja um hversu mikið börn og ungt fólk hreyfir sig.
Líkamsrækt:
Listamannaleiðin
Útisýningin, Listamannabærinn Hveragerði, er í Lystigarðinum á Fossflöt.
Sýningin er byggð upp með níu glerflekum þar sem fjallað er um níu listamenn og er verkum og lífshlaupi þeirra gerð skil á myndrænan og skemmtilegan hátt.
Gangið inn í Lystigarðinn meðfram Varmá að austanverðu. Þar eru 9 skilti í boga í útjaðri grasflatarinnar. Gerið æfingar við skiltin og á milli æfinga er tilvalið að ganga rösklega/skokka/hlaupa í 30 sekúndur og færa sig að næsta skilti. Í þeim æfingum þar sem er notuð teygja má einnig kreppa hnefana og spenna handleggsvöðva og axlir.
Styrktarþjálfun og teygjur – níu stöðvar:
- Hnébeygjur, styrktar- og teygjuæfingar fyrir framanverða lærvöðva, rassvöðva og kvið:
https://www.youtube.com/watch?v=KXtwK66Rx3I - Armbeygjur, styrktar- og teygjuæfingar fyrir handleggi og brjóstvöðva:
https://www.youtube.com/watch?v=dRZwjDtGadI - Framstig, styrktar- og teygjuæfinga fyrir lærvöðva, neðra bak og kvið:
https://www.youtube.com/watch?v=-6LLKQ-YACo
Bakæfing, styrktar- og teygjuæfingar fyrir vöðva í mjóbaki :
https://www.youtube.com/watch?v=e5bB5FiRkQk
Kálfaæfing, styrktar- og teygjuæfingar fyrir kálfavöðva:
https://www.youtube.com/watch?v=4O0fMs3L6Iw
- Mjaðmaæfing, styrktar- og teygjuæfingar fyrir utanverða mjaðmavöðva:
https://www.youtube.com/watch?v=Y8TLhPUp_hY - Axlaæfing, styrktar- og teygjuæfingar fyrir framanverða axlavöðva:
https://www.youtube.com/watch?v=_-fEJ4mdklM - Tvíhöfðaæfing, styrktar- og teygjuæfingar fyrir Tvíhöfða.
https://www.youtube.com/watch?v=P6m7hqLwqoA
Kviðæfing, styrktar- og teygjuæfingar fyrir miðjuvöðva líkamans - planki.
- Munið að spenna kviðinn og anda inn og út um nefið.
https://www.youtube.com/watch?v=nxcxmWb4mIg
“Lífið er ekki verkefni til að leysa heldur leyndardómur til að uppgötva” Amrit Desai
Njótum okkar nánasta umhverfis um páska !
Jóhanna Margrét Hjartardóttir
Menningar- og frístundafulltrúi Hveragerðisbæjar