Fara í efni

Höskuldur er nýr umhverfisfulltrúi

Höskuldur Þorbjarnarson hefur verið ráðinn nýr umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar og hóf hann störf í maí mánuði.

Höskuldur er með B.sc í Landfræði og meistaragráðu í landfræði með áherslu á jarðvegsvísindi. Höskuldur hefur í 14 ár, fyrir nám og meðfram námi, unnið hjá Kambi ehf, vinnuvélaleigu við alhliða og fjölbreytt störf að jarðvegsvinnu og umhverfisverkefnum. Hefur í þeirri vinnu kynnst vel fjölbreyttum verkefnum bæjarfélaga svo sem snjómokstri, lagningu göngustíga, ýmiskonar lagnavinnu auk þess að hafa sinnt viðhaldi véla. Höskuldur er með öll ökuréttindi, vinnuvélaréttindi á fjölda vinnuvéla og ýmis önnur námskeið að baki.

Fyrir hönd Hveragerðisbæjar er Höskuldur boðinn velkominn til starfa.


Síðast breytt: 21. júlí 2017
Getum við bætt efni síðunnar?