Fara í efni

Byggt verður við grunnskólann 2019

Hönnun viðbyggingar við Grunnkólann í Hveragerði mun hefjast innan tíðar en bæjarráð hefur samþykkta að dr. Maggi Jónsson, arkitekt og aðalhönnuður viðbygginga við Grunnskólann í Hveragerði, verði fenginn til verksins.

Ennfremur var samþykkt að á hönnunarstigi hafi arkitekt samráð við starfshóp sem eftirtaldir skipa: bæjarstjóri, byggingafulltrúi, skólastjóri, fulltrúi kennara og formaður fræðslunefndar.

Gert er ráð fyrir að ný viðbygging rísi við suðurenda nýja anddyrisins. Við hönnunina verði tekið mið af því að stofurnar sem þar verða til geti nýst sem mynd- og handmenntastofur þegar fram líða stundir og aðrar viðbyggingar við skólann verða að veruleika eins og gert hefur verið ráð fyrir. Í viðbyggingunni verði reynt að koma fyrir eins mörgum kennslustofum og hægt er og að góð skilyrði til kennslu verði höfð í fyrirrúmi.

Samkvæmt þriggja ára áætlun er gert ráð fyrir að framkvæmdir við viðbygginguna hefjist árið 2019.


Síðast breytt: 27. júlí 2018
Getum við bætt efni síðunnar?