Fara í efni

Heimaþjónusta starfsmenn óskast í kvöld og helgarvinnu

Hveragerðisbær óskar eftir starfsmönnum til að sinna félagslegri heimaþjónustu á kvöldin og um helgar. Um er að ræða hlutastarf í vaktavinnu. Umsækjandi þarf að vera eldri en 18 ára.

Helstu verkefni og ábyrgð: Að veita þjónustu eftir þjónustusamningi sem gerður hefur verið við þjónustuþega á heimilum þeirra, eins og aðstoð við heimilishald, félagslegur stuðningur, persónuleg umhirða og fl.

Hæfniskröfur Æskilegt er að umsækjandi hafi félagsliðamenntun og reynslu af heimaþjónustu eða umönnunarstörfum.

Lipurð í mannlegum samskiptum Vandvirkni og sjálfstæði í starfi. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna á Suðurlandi (Foss).

Frekari upplýsingar um starfið veitir Erna Guðmundsdóttir forstöðumaður heimaþjónustu í síma 483-4000 og tölvupósti ernag@hveragerdi.is.

Umsóknarfrestur er til 18. apríl 2017. Umsóknum er hægt að skila á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar að Sunnumörk 2, Hveragerði eða á tölvupósti til ernag@hveragerdi.is


Síðast breytt: 30. mars 2017
Getum við bætt efni síðunnar?