Fara í efni

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands kynnir átakið Hreint Suðurland

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands kynnir átakið Hreint Suðurland sem er hreinsunarátak miðað að lóðum og lendum í umdæminu.

Átakið er áskorun til lóðarhafa, íbúa og landeigenda á Suðurlandi, að þeir gangi í það að hreinsa af lóðum sínum og lendum, allt það sem getur valdið ónæði, mengun eða lýti á umhverfinu. Jafnframt verður hægt að krefjast lagfæringa og viðgerða á lóðum, girðingum og mannvirkjum ef nauðsynlegt þykir, auk þess sem heimilt er að láta fjarlægja númerslausar bifreiðar og bílflök og sambærilega hluti að undangenginni viðvörun á, kostnað eigenda

Hreint Suðurland

Lóðarhreinsun og númerslausar bifreiðar


Síðast breytt: 16. apríl 2019
Getum við bætt efni síðunnar?