Guðríður Aadnegard hlaut hvatningarverðlaun
Guðríður Aadnegard, námsráðgjafi og umsjónarkennari við Grunnskólann í Hveragerði, hlaut hvatningarverðlaun dags gegn einelti í dag. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhentu henni verðlaunin við hátíðlega athöfn í Rimaskóla.
Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá Heimili og skóla, landssamtökum foreldra, Ekkert hatur, verkefni gegn hatursorðræðu, og SAFT, vakningarátaki um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi.
Þykir góð fyrirmynd fyrir aðra kennara
Fagráð gegn einelti hjá Menntamálastofnun valdi verðlaunahafa úr innsendum tilnefningum og varð Guðríður fyrir valinu vegna þess ómetanlega starfs sem hún hefur unnið í eineltismálum undanfarin ár. Hún sé þar að auki góð fyrirmynd fyrir aðra kennara þegar kemur að samskiptamálum nemenda, að því er greint frá í tilnefningunni. Hún hafi í gegnum tíðina látið málefni nemenda sig sérstaklega varða og nálgast þau af mikilli hlýju og virðingu. Þá hafi Guðríður einnig látið til sín taka á vettvangi íþrótta þar sem hún starfaði í broddi fylkingar hjá HSK, UMFÍ og ÍSÍ. Þar hafi hún sem fyrr ávallt haft hag iðkenda að leiðarljósi og lagt ríka áherslu á góð samskipti innan vallar sem utan.
Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður Heimilis og skóla, og Sigrún Garcia Thorarensen, formaður fagráðs gegn einelti, ávörpuðu samkomuna auk forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðherra og verðlaunahafans. Nemendur Rimaskóla settu einnig skemmtilegan svip á dagskrána. Stúlkur í 5. bekk dönsuðu vinadans, atriði skólans úr Skrekk var flutt en það fjallar um einelti gegn nýjum nemenda í skóla og Kolbrún Arna Káradóttir, nemandi í 9. bekk flutti ljóð sitt „Það þarf aðeins einn“ sem hún samdi í tilefni af degi gegn einelti.
frétt af mbl.is