Fara í efni

Guðjón elstur og 1989 fjölmennust

Íbúum í Hveragerði hefur fjölgað um rúmlega 1.000 frá árinu 2000.
Íbúum í Hveragerði hefur fjölgað um rúmlega 1.000 frá árinu 2000.

Guðjón Pálsson er elsti íbúi Hveragerðisbæjar en hann varð 96 ára þann 3 október 2020.   Íbúar Hveragerðisbæjar sem komnir eru á tíræðisaldur eru 21 alls.
Guðjón Pálsson fluttist til Hveragerðis árið 1941 og hóf þá störf að Reykjum jafnframt því að halda gangandi rafstöðinni sem þá var í Varmá  en rústir hennar má enn sjá í Varmárgili. Hann lærði rafvirkjun og starfaði sem rafvirki alla sína starfsævi, lengstum hér í Hveragerði.  Hann er í dag búsettur á Ási hjúkrunarheimili. 

Árið 2012 tók undirrituð viðtal við Guðjón sem birtist í jólablaði Bláhvers, blaði Sjálfstæðisfélags Hveragerðis. Þar má lesa um áhugavert lífshlaup Guðjóns og fræðast um lífið í árdaga byggðar í Hveragerði.  Smellið hér til að sjá viðtalið sem er á blaðsíðum 9-12.

 

 

Flestir fæddir árið 1989

Árgangur fæddur 1989 er enn sem áður langfjölmennastur í bæjarfélaginu en þau eru nú 67 búandi í Hveragerði.
Mikið þarf að fjölga í öðrum árgöngum til að velta 1989 úr sessi en næst fjölmennasti árgangur bæjarins er fæddur árið 1964 en sá hópur er nú 50 talsins. Árgangur fæddur 1956 telur 49 manns, þau sem fædd eru árið 1950 eru 46 og árgangur fæddur 1960 eru 45.

Árið 2020 eru þegar fædd 26 börn sem öll hafa verið boðin velkomin með gjöf frá bæjarfélaginu sínu. Þau sem fædd eru árið 2019 skipa sér nú þegar í flokk fjölmennustu árganga sem hér búa en þau eru 44.

Mikil fjölgun framundan

Samkvæmt óstaðfestum upplýsingum úr þjóðskrá þann 30. desember 2020 eru íbúar í Hveragerði nú 2.781 en voru 2.699 fyrir 12 mánuðum. Er þetta aukning um 82 íbúa eða 3% á milli ára.

Frá árinu 2000 hefur fjölgað um 57,3% eða um 1.013 manns sem er fjölgun langt yfir landsmeðaltali. Núna eru ríflega 200 íbúðir í byggingu eða í farvatninu og má því búast við mikilli fjölgun í Hveragerði á næstu árum.

Óska  öllum farsældar á komandi ári um leið og ég  þakka ánægjulegt samstarf og góðar samverustundir á árinu sem er að líða. 

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri 


Síðast breytt: 30. desember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?